Núverandi fjárfestingar

    Kjölfesta leiddi 800 milljón króna fjárfestingu í Meniga í júní 2013. Auk Kjölfestu tóku Frumtak I og Icora Partners þátt í

Núverandi fjárfestingar

 

 

Kjölfesta leiddi 800 milljón króna fjárfestingu í Meniga í júní 2013. Auk Kjölfestu tóku Frumtak I og Icora Partners þátt í fjármögnuninni. 

Meniga er hugbúnaðarfyrirtæki, sem skráð er í Bretlandi og hefur starfsstöðvar í London, Reykjavík, Stokkhólmi og Varsjá. Félagið var stofnað 2009. Meniga er markaðsleiðandi í Evrópu í þróun og sölu heimilisfjármálalausna fyrir banka og fjármálafyrirtæki. Lausnir félagsins eru nú aðgengilegar í gegnum netbanka til tæplega 50 milljón netnotendum hjá 63 bönkum í Evrópu, Asíu og víðar. Mengia hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir nýsköpun, m.a. fyrir bestu tæknilausnina árin 2011, 2013 og 2015 á Finovate Europe, sem er ein þekktasta og virtasta ráðstefnan um tækninýjungar í banka- og fjármálaþjónustu.Félagið er á Fintech 50 listanum 2014 og 2016 yfir mest spennandi Fintech fyrirtækin og hlaut íslensku vefverðlaunin sem besta vefkerfið árið 2017. Árlegur vöxtur félagsins á undanförnum árum hefur verið mikill. Gerjun á markaði með fjármálatæknilausnir er gríðalegur. Í breyttu rekstrarumhverfi þar sem upplýsingar banka um viðskiptavini sína og greiðslumiðlun er ekki lengur þeirra einkamál er þörf þeirra fyrir að styrkja samband sitt við viðskiptavini með nýjum viðmóts- og tæknilausnum mjög mikil.

 

 

 

Kjölfesta, fjárfestingarfélagið Edda og nokkrir lífeyrissjóðir eiga um 24% hlut í Íslandshótelum. Aðrir hluthafar eru Ólafur D. Torfason og fjölskylda.

Íslandshótel er næst stærsta hótelkeðja landsins en félagið á og rekur 17 hótel um land allt. Íslandshótel á/rekur Grand Hótel Reykjavík, Hótel Centrum, Best Western Hótel Reykjavík auk Fosshótela hringinn í kringum landið. Stærsta hótelið er Fosshótel Reykjavík við Höfðatorg. Á undanförnum tveimur árum hafa bæst við tvö ný hótel Fosshótel á Hnappavöllum og við Mývatn. Félagið er leiðandi á sviði ferðaþjónustu með sterka markaðsstöðu og hótel staðsett um allt land. 

 

 

Svæði